lørdag den 6. marts 2010

Kristin frænka í heimsókn





Hæ öll sömul!

Í febrúar kom Kristín frænka í heimsókn og það var voða gaman og ég hlakka voða til að koma í heimsókn til Íslands í sumar. Krístin passaði mig af því að ég var meidd í fætinum og gat ekki farið til dagmömmunar. Síðan fór Kristín og mamma með mig að kaupa öskudagsbúin því það var öskudagsball í "legestuen". Ég var trúður og það var rosa gaman og við fengum rúsinur þegar við vorum búin að slá köttinn úr tunnunni.
Á laugardeginum fórum við með lest til Árósa og heimsóktum Eldar Bóas, Aniku og alla hina frændur og frænkur og ég var dauðþreytt þegar ég kom heim. Á sunnudeginum heimsóktum við langömmu í Fjeritslev og þar voru farfar og farmor, Jakob og Mette, Plys, Lisbet og Hardy. Erik bróðir langömmu kom líka í heimsókn. Á mánudeginum fór Kristín og ég sakna hennar rosalega mikið. Bless Bless Freya

3 kommentarer:

Anonym sagde ...

Loksins, loksins ég var alveg farin að örvænta. Jesus minn hvað þú ert orðin hárprúð, bara hægt að fara að flétta og setja í tíkó:) Þú ert ekkert smá flottur trúður. Er strax farin að hlakka til sumarsins, nú verður sko ekkert gifs sem kemur í veg fyrir að ég komist með þér í sund með þér. Bið að heilsa öllum
kv. Málfríður frænka

Anonym sagde ...

Aldeilis komin með sítt hár :) engin smá pæja. Hlakka til að sjá þig í sumar. knús í hús, Bríet

Anonym sagde ...

Ég sakna þín mikið elskan. Hlakka til að sjá þig í sumar.
Kristín frænka